Hverfisgötu 6a, 101 Reykjavík

Sími 563 7055 | Bréfsími 563 7054

Netfang kjararad@kjararad.is

Fréttir

Úrskurðir samkvæmt 5. grein

Prófessorar

6.11.2006

Samkvæmt 5. grein laga um kjararáð sker ráðið sjálft úr um til hverra ákvörðun þess um laun og starfskjör nær. Kjararáð hefur ákveðið að taka til skoðunar hvort það skuli áfram ákveða laun prófessora.

Prófessorum, félögum þeirra, háskólaráðum og ráðuneytum hefur verið gefinn kostur á að senda kjararáði greinargerð vegna málsins. Þá hafa fulltrúar prófessora komið á fund ráðsins og fulltrúar háskólaráða og ráðuneyta koma síðar. Vonast er til að umfjöllun kjararáðs ljúki fyrir jól.

Þá hefur einnig verið ákveðið að skoða hvort prestar þjóðkirkjunnar skuli áfram heyra undir ráðið.



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica