Fréttir
Almenn launabreyting
Kjararáð tók í gær ákvörðun um almenna breytingu á launum þeirra sem ráðið ákveður laun. Tilefni breytingarinnar var fyrst og fremst breyting á launakerfi ríkisstarfsmanna sem gerð var 1. maí sl., en einnig almenn þróun kjaramála.
Breytingin er í því fólgin að mánaðarlaun (dagvinnulaun) hækka en fastar greiðslur fyrir yfirvinnu lækka, þannig að hlutfall dagvinnulauna af heildarlaunum hækkar. Breytingin leiðir til mismikillar hækkunar, en að meðaltali er hækkunin 2,6%. Um leið var ákveðið að hækka laun forseta Íslands, alþingismanna og ráðherra um sama hlutfall.
