Fréttir
Almenn breyting á launum
Kjararáð ákvað hinn 27. ágúst 2008 almenna hækkun launa þeirra sem ráðið ákveður laun að undanskildum skrifstofustjórum í Stjórnarráði Íslands. Niðurstaða ráðsins var að fylgja þeirri meginstefnu sem fylgt hefur verið í kjarasamningum sem gerðir hafa verið á árinu.
