Hverfisgötu 6a, 101 Reykjavík

Sími 563 7055 | Bréfsími 563 7054

Netfang kjararad@kjararad.is

Fréttir

Svar kjararáðs við tilmælum forsætisráðherra

2.12.2008

Kjararáð hefur svarað bréfi forsætisráðherra frá 21. nóvember 2008, þar sem þeim tilmælum var beint til ráðsins að ákveða tímabundið, þ.e.a.s. til ársloka 2009, að lækka laun þeirra sem undir ráðið heyra um 5-15%, þannig að þeir sem hafa hæstu launin tækju á sig hlutfallslega mesta skerðingu.

Niðurstaða kjararáðs var að þar sem kjarasamningar hafa ekki verið endurskoðaðir og traust gögn um launaþróun síðustu tveggja mánaða liggja ekki fyrir séu ekki lagaskilyrði til að fella nýjan almennan úrskurð um laun og starfskjör þeirra sem úrskurðarvald ráðsins tekur til. Kjararáð mun áfram fylgjast með þróun kjaramála og taka málið upp þegar upplýsingar liggja fyrir sem gera það skylt.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica