Hverfisgötu 6a, 101 Reykjavík

Sími 563 7055 | Bréfsími 563 7054

Netfang kjararad@kjararad.is

Fréttir

Kjararáð getur ekki lækkað laun forsetans

15.1.2009

Á fundi sínum 13. janúar sl. afgreiddi kjararáð erindi herra Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þar sem hann fór þess á leit að laun hans yrðu lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra og forseta Alþingis, handhafa forsetavalds. Kjararáð hafnaði erindinu þar sem það er óheimilt samkvæmt stjórnarskrá. Ráðið tók ekki afstöðu til þess hvort hann gæti sjálfur afsalað sér hluta launa sinna, tímabundið eða varanlega, með tilkynningu til fjármálaráðherra.
Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica