Fréttir
Lækkun launa embættismanna
Kjararáð tók í gær ákvörðun um lækkun launa embættismanna sem undir ráðið heyra, í samræmi við lög nr. 148/2008. Áður hefur ráðið ákveðið að laun alþingismanna skuli lækka um 7,5% og laun ráðherra um 14-15%. Ákvörðun sem tekin var í gær nær ekki til skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu eða dómara.
