Fréttir
Skrifstofustjórar
Laun skrifstofustjórar í Stjórnarráði Íslands lækka
Kjararáð ákvað síðastliðinn föstudag laun skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands. Með úrskurðinum voru störf þeirra metin til launa á samræmdan hátt, en auk þess var ákveðið að laun þeirra skyldu lækka í samræmi við lög nr. 148/2008. Þar með hefur kjararáð lokið við að lækka laun þeirra sem undir það heyra eins og fyrrnefnd lög mæltu fyrir um.
