Úrskurðir um laun framkvæmdastjóra ríkisfyrirtækja, sbr. lög nr. 87/2009
Með lögum nr. 87/2009, sem gildi tóku 20. ágúst 2009, var kjararáði falið að ákveða einnig laun og starfskjör framkvæmdastjóra hlutafélaga og annars konar félaga, einkaréttareðlis, sem eru að meiri hluta í eigu ríkisins og félaga sem eru að meiri hluta í eigu þessara félaga. Að auki var einstökum lögum sem varða allmargar stofnanir og opinber hlutafélög breytt til þess að fela kjararáði að ákveða laun og önnur starfskjör framkvæmdastjóra þeirra. Jafnframt var svo kveðið á í lögunum, að kjararáð skyldi við ákvörðun sína gæta þess að föst laun fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, yrðu ekki hærri en föst laun forsætisráðherra, sem nú eru 935.000 krónur á mánuði.
Kjararáð hóf öflun gagna um miðjan september 2009 með bréfi til fjármálaráðuneytisins þar sem óskað var eftir lista yfir öll félög einkaréttareðlis sem féllu undir gildissvið laganna. Í framhaldi af því voru send bréf til umræddra framkvæmdastjóra og stjórna þar sem óskað var eftir upplýsingum og gefinn kostur á að koma sjónarmiðum á framfæri við ráðið.
Kjararáð kynnti framkvæmdastjórunum fyrirhugaðar ákvarðanir og drög að úrskurði um almennar forsendur með bréfum dagsettum 18. janúar 2010 og gaf þeim kost á að koma andmælum og sjónarmiðum á framfæri við ráðið. Þar sem margir gerðu athugasemdir við að ekki yrði ráðið af bréfi kjararáðs hvað réði fyrirhugaðri ákvörðun var aftur veittur frestur til andmæla með bréfum dagsettum 9. febrúar 2010 og fylgdu þeim rökstuðningur fyrir boðaðri ákvörðun. Kjararáð tók síðan afstöðu til andmæla sem bárust og þriðjudaginn 23. febrúar síðastliðinn kvað ráðið upp úrskurði um laun þeirra framkvæmdastjóra sem um ræðir að framkvæmdastjórum dótturfélaga undanskildum. Annars vegar er úrskurður um almennar forsendur ákvarðana um laun og hins vegar eru ákvarðanir um laun einstakra framkvæmdastjóra. Fullskipað (fimm manna) kjararáð tók ákvörðun um almennar forsendur en þriggja manna kjararáð ákvað laun einstakra framkvæmdastjóra og byggðust þær á þeim forsendum sem ákveðnar voru af fullskipuðu kjararáði. Úrskurðirnir eru allir birtir hér á síðunni undir flipanum Úrskurðir/Allir úrskurðir um laun.
Kjararáð mun ákveða laun framkvæmdastjóra dótturfélaga á næstu vikum og verða ákvarðanir birtar hér á síðunni þegar því er lokið.
