Hverfisgötu 6a, 101 Reykjavík

Sími 563 7055 | Bréfsími 563 7054

Netfang kjararad@kjararad.is

Almenn starfskjör

Árnessjóður

Ríkissjóður greiðir gjald af launum embættismanna annarra en presta í

sérstakan orlofssjóð, Árnessjóð. Af launum presta greiðir ríkissjóður gjald í

orlofssjóð BHM. Gjald þetta skal nema 0,25% af launum (heildarlaunum) og

greiðist mánaðarlega eftir á.

 

Fjölskyldu- og styrktarsjóður

Greitt er í Fjölskyldu- og styrktarsjóð vegna þeirra sem kjararáð ákveður laun, annarra en alþingismanna, ráðherra og ríkissáttasemjara. Úr sjóðnum er greitt framlag í Styrktarsjóð BHM samkvæmt ákvörðun sjóðstjórnar og geta þeir embættismenn sem kjararáð ákveður laun sótt um styrki til sjóðsins samkvæmt reglum hans.
 

Starfsmenntunarsjóður embættismanna

Ríkissjóður greiðir gjald vegna embættismanna, annarra en presta, í Starfsmenntunarsjóð embættismanna. Vegna presta er greitt í Starfsmenntunarsjóð BHM. Gjald þetta nemur 0,22% af mánaðarlaunum. Hér er umsóknareyðublað um styrk úr Starfsmenntunarsjóði embættismanna.
 

Viðmiðunarreglur kjararáðs um greiðslur fyrir aukastörf

Kjararáð setti hinn 30. maí 2007 viðmiðunarreglur um greiðslur fyrir aukastörf.
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica