Kjararáð hefur tekið ákvörðun um breytingu á launum þeirra sem undir kjararáð heyra, annarra en þeirra sem færðust undir ákvörðunarvald ráðsins með lögum nr. 87/2009. Ákvörðunin tekur gildi 1. október 2011.
Almenn hækkun launa
Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem undir ákvörðunarvald ráðsins heyra skuli hækka frá og með 1. júní 2011. Sjá nánar ákvörðun ráðsins nr. 2011.001 frá 28. júní 2011.
Kjararáð setti hinn 30. maí 2007 reglur um almenn starfskjör embættismanna sem heyra undir úrskurð kjararáðs hvað varðar laun og starfskjör, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð.
Lesa meira
Dómarar
Kjararáð ákvað þann 18. apríl 2007 að leiðrétta launagrunn dómara með vísan til niðurstöðu héraðsdóms 19. desember 2006.